Bókakynning Í Safnahúsi Borgarfjarðar 18. sept. kl.20:00

nextjs

Kynntar verða tvær nýútkomnar bækur.

“Fjórir snillingar”;  Helgi Bjarnason kynnir aðra bók sína í ritröðinni Sagnaþættir úr Borgarfirði.  Hún fjallar um ævi og störf nokkurra áhugaverða einstaklinga sem sett hafa svip á samfélagið í Borgarfirði á ýmsum tímum.  Útgefandi er Helgi sjálfur.

“Búverk og breyttir tímar”;  Bjarni Guðmundsson, prófessor á Hvanneyri, kynnir bók sína sem fjallar um búnaðarsögu þjóðarinnar.  Að þessu sinni fjallar Bjarni um nokkur þekkt verk og verkfæri sem alþekkt voru á síðustu öld, en hafa nú ýmist horfið úr verkhring eða breyst í helstu atriðum.  Útgefandi er Sæmundur.

Auk upplestursins verður boðið upp á tónlistaratriði og heitt verður á könnunni.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir!