Vegna langvarandi þurrka á Vesturlandi hefur ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Vesturlandi, lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna hættu á gróðureldum.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, almannavarnir í héraði, ásamt viðbragðsaðilum hafa áhyggjur af hættu á gróðureldum á Vesturlandi, sérstaklega í Skorradal. Því er talið rétt að lýsa yfir óvissustigi til samræmis við vinnu og viðbrögð þessara aðila. Óvissustig á við þegar grunur vaknar um að eitthvað sé að gerast af náttúru eða mannavöldum sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar sé ógnað.
Veðurstofan Íslands sér ekki úrkomu í veðurspám á svæðinu næstu viku, en áframhaldandi hlýindi. Veðurstofan fylgist vel með í samvinnu við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögregluna á Vesturlandi.
Fólk og landeigendur eru beðin um að sýna aðgát í meðferð opins elds og eldunartækja þar sem mikill gróður er .
Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila.
Viðbrögð og aðrar upplýsingar má finna hér https://www.almannavarnir.is/natturuva/eldhaetta/