Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 14. september að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Niðurskóg í landi Húsafells 3 frá árinu 2003 m.s.br.
Breytingin tekur til eins byggingarreitar, Hraunbrekkur 33. Er hann stækkaður úr 225fm í 625fm og hámarksbyggingarmagn aukið úr 150fm í 230fm. Vegghæð hækkuð úr 2,8m í 4,7m og þakhalla breytt úr 25-35 gráðum yfir í 2-35 gráður. Á skipulagssvæðinu eru 70 frístundahús. Tillagan samræmist gildandi aðalskipulagi.
Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is og á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is frá 21. september til og með 3. nóvember 2023. Ef óskað er nánari kynningu á lýsingunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma með ábendingu við lýsinguna og er frestur til að skila inn ábendingum til 3. nóvember en þeim skal skila í Skiplagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa.
Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.
Borgarbyggð, 21. september 2023.
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar