Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi í Borgarbyggð.
Sveinukot
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 12.03.2026 að auglýsa tillögu að tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Sveinukot í Borgarbyggð fyrir HVAÐ HVAR í Borgarbyggð.
Tillagan tekur til 4,8 ha lóðina Sveinukot í Borgarbyggð þar sem fyrirhugað er að byggja upp gistiþjónustu með 20 litlum gistihúsum auk sameiginlegrar baðaðstöðu, alls 740 m². Deiliskipulag þetta samræmist aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037.
Skipulagstillaga er aðgengileg í skipulagsgátt
Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is mál nr. 41/2026) frá 18.03.26 til og með 04.05.26 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á tillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar
Borgarbyggð, 18. mars, 2026.
