Langárbyrgi veiðihús við Langá

thora

Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi í Borgarbyggð.

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkti þann 1. mars 2024 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Langárbyrgi í landi Jarðlangsstaða í Borgarbyggð.

Deiliskipulagið tekur til lóðarinnar Langárbyrgi, veiðihús (L177317) við Langá í Borgarbyggð og nánasta umhverfi lóðarinnar. Stærð lóðar er 1,37 ha og var hún stofnuð úr jörðinni Jarðlangsstöðum. Á lóðinni er veiðihús á einni hæð sem byggt var 1998 og stækkað 2001 og er gert ráð fyrir stækkun á því. Aðkoma að lóð er út frá Stangarholtsvegi.  Tillagan samræmist Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is mál nr. 730/2023) frá 21. mars til og með 5. maí 2024 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á tillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 21. mars, 2024.

This site is registered on wpml.org as a development site. Switch to a production site key to remove this banner.