Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi í Borgarbyggð.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 11.12.2025 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi Hraunsáss III í Borgarbyggð.
Tillagan tekur til 19ha landsvæðis austur af jörðinni Hraunsás. Áformað er að byggja 25 gistihús ásamt þjónustuhúsi. Gistihúsin verða á fjórum lóðum. Byggingarmagn 1.950m² og lóðirnar eru samtals 56.024m². Framkvæmdum á svæðinu verður skipt í þrjá áfanga. Aðkoma að svæðinu verður af Bæjarsveitarvegi. Í endurskoðuðu aðalskipulagi Borgarbyggðar er svæðið með landnotkun verslun- og þjónusta og samræmist deiliskipulagið því. Stefnt er á að deiliskipulagið muni verða staðfest þegar endurskoðað aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037 hefur verið staðfest.
Skipulagstillagan er aðgengileg hér í skipulagsgátt
Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is mál nr1656/2025) frá 18.12.2025 til og með 05.02.2026 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað í skipulagsgáttina, senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@borgarbyggd.is. Ef óskað er nánari kynningu á tillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar
Borgarbyggð, 18. desember, 2025.
