Englandslaug í landi Englands

thora

Í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst lýsing að breytingu á deiliskipulagi í Borgarbyggð.

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar svk. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkti þann 3. febrúar að auglýsa lýsingu á nýju deiliskipulagi fyrir Englandslaug í landi Englands í Borgarbyggð.

Deiliskipulagssvæðið tekur til gamals baðstaðar í dalnum. Gert er ráð fyrir að laugin verði lagfærð og aðkoman að henni bætt m.a. með göngubrú yfir Tunguá. Nýtt hús verði byggt sem gagnast bæði fyrir hitaveitu og búningaaðstöðu fyrir gesti. Ferðafélag Borgarfjarðar vinnur að gerð deiliskipulagsins í samráði við sveitarfélagið, landeigendur Englands og Reykja og hitaveituna Gullbera.

Ofangreind skipulagslýsing er aðgengileg á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is frá 21. febrúar til og með 9. mars 2023. Ef óskað er nánari kynningu á lýsingunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma með ábendingu við lýsinguna og er frestur til að skila inn ábendingum til 9. mars 2023. Ábendingum skal skila skriflega í þjónustuver Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@borgarbyggd.is.

Vakin er athygli á að ábendingar teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 21. febrúar 2023.