Sigmundarstaðir, mælimastur á Grjóthálsi
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 08.05.2025 eftirfarandi tillögu samkvæmt 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010:
Deiliskipulag mælimasturs á Grjóthálsi í landi Sigmundarstaða.
Deiliskipulagið tekur til svæðis innan jarðarinnar Sigmundarstaðir L134748, þar sem áætlað er að reisa tímabundið mælimastur til vindrannsókna. Mastrið sem um ræðir er stálgrindamastur, þríhyrnt með 48 cm breiðum hliðum. Mastrið er allt að 98 m hátt með stögum sem ná allt að 60 m út frá mastrinu. Áætlað er að mastrið standi í 2 ár. Aðkoma að svæðinu er um 350 m frá veginum yfir Grjótháls, Grjótsvegi. Aðkoma að mastrinu er um 365 m bráðabirgðaslóða sem liggur frá Grjótsvegi og að mastrinu. Tillaga að deiliskipulagi mælimasturs á Grjóthálsi var auglýst frá 20.02.2025 til 06.04.2025.
Athugasemdir bárust frá hagsmunaaðilum. Brugðist var við þeim eða þeim svarað. Svör við athugasemdum má nálgast undir málinu í skipulagsgátt mál nr. 192/2025.
Deiliskipulagstillagan hefur verið send Skipulagsstofnun og mun taka gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu sveitarstjórnar geta snúið sér til umhverfis- og skipulagssviðs Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, Borgarnesi.
Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar
14. mars 2025