Boðað er til íbúafundar fimmtudaginn 28. mars kl. 19:30 í Hjálmakletti í Borgarnesi. Á íbúafundi verður kynnt tillaga að rammaskipulagi á vinnslustigi.
Dagskrá:
19:30 – Setning
19:35 – Fyrirhuguð skipulagsverkefni í Borgarnesi – kynning
19:50 – Rammaskipulag fyrir Brákarey, fulltrúar frá teiknistofunni Landslag
20:10 – Kaffihlé
20:20 – Umræður í hópum, framtíðarsýn Brákareyjar
21:20 – Samantekt
21:30 – Fundi slitið
Umhverfis- og skipulagssvið Borgarbyggðar