Hellulögn í Borgarnesi

júlí 30, 2019
Featured image for “Hellulögn í Borgarnesi”

Verið er að endurnýja gangstéttina á Borgarbraut í Borgarnesi í sumar. Verkið vinnur fyrirtækið Sigurgarðar sf. Vakið hefur athygli vegfarenda að ungar stúlkur eru þar að störfum og var viðtal tekið við þær í sjónvarpsfréttum á RUV þann 29. júlí sl.


 


 


 


Fagna margir íbúar Borgarbyggðar framkvæmdunum og er ánægjulegt að sjá hve snyrtilegt er í Borgarnesi og hve samtaka íbúar eru um að fegra bæinn sinn.


Share: