Tré ársins í Borgarnesi

Árlega velur Skógræktarfélag Íslands tré ársins og að þessu sinni hefur orðið fyrir valinu purpurahlynur í Borgarnesi. Hátíðleg athöfn í tilefni af því verður sunnudaginn 31. ágúst kl. 13:00. Safnast verður saman hjá landnámsvörðunni við innganginn að Skallagrímsgarði og gengið að gerseminni. Hlynurinn er talinn vera eitt af glæsilegri trjám í Borgarbyggð og á það sér meira en 60 ára …

Fróðleikur um sveppi og sveppatínslu í Einkunnum

Umsjónarnefnd Einkunna í samvinnu við Skógræktarfélag Borgarfjarðar stendur fyrir skógargöngu í fólkvangnum Einkunnum sunnudaginn 31. ágúst. Ágúst Árnason fyrrverandi skógarvörður hjá Skógrækt ríkisins í Hvammi í Skorradal mun fræða þátttakendur um sveppi og sveppatínslu. Lagt af stað í gönguna frá bílastæðinu í Einkunnum kl. 16:00.  

Tónleikar í Skallagrímsgarði

Tónleikar verða á nýja sviðinu í Skallagrímsgarði laugardaginn 30. ágúst milli kl. 18:00 og 22:00. Það eru hlómsveitirnar Irony of apathy, Ferlegheit, Klakksvík, Mýgrútur, Minjafish, Ramses, Plasma og BRR sem troða upp.  

Nýir starfsmenn í ráðhúsi Borgarbyggðar

Nokkrar breytingar eru á starfsmannaliði ráðhússins í Borgarnesi um þessar mundir og tilfærsla milli starfa. Ásthildur Magnúsdóttir fræðslustjóri er farin í fæðingarorlof frá og með deginum í dag, 26. ágúst. Ásþór Ragnarsson, starfandi sálfræðingur Borgarbyggðar mun gegna stöðu fræðslustjóri í fjarveru Ásthildar. Á meðan hann gegnir starfi fræðslustjóra munu taka við hans starfi, sálfræðingarnir Inga Stefánsdóttir og Sigurður Ragnarsson. Ásta …

Götusópun í Borgarnesi

Mánudaginn 25. ágúst og þriðjudaginn 26. ágúst verða götur sópaðar í Borgarnesi. Íbúar í Borgarnesi eru vinsamlega hvattir til að leggja bílum sínum þannig að það hamli ekki götusópun. Það er fyrirtækið Hreinsitækni sem annast götusópunina en það fyrirtæki er undirverktaki HS-verktaks sem Borgarbyggð hefur gert þjónustusamning við. Mynd: Jökull Helgason

Réttir í Borgarbyggð árið 2008

Réttir í Borgarbyggð eru á eftirfarandi stöðum: 1. Kaldárbakkarétt, sunnudaginn 7. september kl. 11:00. 2. Fljótstungurétt, sunnudaginn 14. september kl. 8:00. 3. Brekkurétt, sunnudaginn 14. september kl. 14:00. 4. Þverárrétt, mánudaginn 15. september kl. 7:00. 5. Hítardalsrétt, mánudaginn 15. september kl. 9:00. 6. Svignaskarðsrétt, mánudaginn 15. september kl. 10:00. 7. Grímsstaðarrétt, þriðjudaginn 16. september kl. 11:00. 8. Oddstaðarétt, miðvikudaginn 17. …

Þvílík spenna!

Unglingarnir í Borgarnesi mættu með kennurum sínum í félagsheimilið Óðal í dag til að marka upphaf vetrarstarfsins. Þar horfðu þau m.a. saman á landsleik Íslands og Spánar á Ólympíuleikunum í Kína. Landsliðið okkar Íslendinga í handbolta vann stórsigur á Spánverjum og tryggðu sér þar með þátttöku í úrslitaleiknum sem fram fer á sunnudag. Mikil stemning var í Óðali eins og …

Lestrarhestar koma saman

Í gær, 20. ágúst, voru í Safnahúsi afhent verðlaun til krakka sem hafa verið sérstaklega dugleg að lesa í sumar. Verkefnið hét Sumarlestur 2008 sem er lestrarhvetjandi verkefni og ætlað að þjálfa færni barnanna í lestri. Á uppskeruhátíð sumarlesturs var boðið upp á veitingar, farið í leiki og vinningar og viðurkenningar afhentar. Þátttakan var afar góð og þeir 20 krakkar …

Sundnámskeið í Borgarnesi

Sundnámskeið verður haldið nú í ágúst fyrir börn fædd árið 2002. Það hefst 25. ágúst og stendur til 4. september. Kennsla fer fram mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga. Sigrún Ögn Sigurðardóttir (Dódó) tekur á móti skráningum í símum 898-1512 og 437-1332. Hér má nálgast auglýsinguna og frekari upplýsingar.  

Endurnýjun á opnum leiksvæðum í Borgarbyggð

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á síðastliðnu ári að veita 10 milljónum á ári næstu 3 árin í endurnýjun á opnum leiksvæðum í Borgarbyggð. Framkvæmdasviði ásamt íþrótta- og æskulýðsfulltrúa var falið að koma með tillögur að nýjum leiktækjum sem og nýjum leiksvæðum sem kæmu til framkvæmda á þessu ári. Framkvæmdasvið gerði það að tillögu sinni að við Böðvarsgötu yrði gert nýtt leiksvæði …