Lausar iðnaðarlóðir í Borgarnesi

Í Borgarnesi eru lausar til umsókna 18 iðnaðar- og athafnalóðir við Sólbakka og Vallarás. Stærðir lóðanna eru á bilinu frá 3.500 til 11.800 m2. Nánari upplýsingar um lóðirnar má fá hjá Umhverfis- og skipulagssviði Borgarbyggðar í síma 433 7100. Sjá yfirlitsmynd hér.  

Styttist í malbikið

Vinna er nú í fullum gangi við göturnar Birkiklett og Fjóluklett í Borgarnesi. Verið er að undirbúa göturnar fyrir malbikun en stefnt er að því að malbika þessar tvær götur á næstu dögum. Það er fyrirtækið Borgarverk sem annast framkvæmdina. Myndina tók Jökull Helgason.    

Tónfundavika í Tónlistarskóla Borgarfjarðar

Vikuna 10.-14. október verður tónfundavika í Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Haldnir verða tónfundir í Tónlistarskólanum kl. 18:00 mánudag – fimmtudag. Einnig verða haldnir tónfundir á skólatíma í dreifbýlisskólunum. Á föstudeginum munu nokkrir nemendur úr skólanum heimsækja félagsstarf aldraðra að Borgarbraut 65a og halda tónleika kl. 13:30. Tónfundirnir eru öllum opnir. Á myndinni er Gunnar Örn Ómarsson nemandi Tónlistarskólans að leika á flygilinn. …

Gangstéttar tilbúnar við Stöðulsholt

Búið er að steypa gangstéttar í Stöðulsholti í Borgarnesi en alls voru steyptir tæplega 500 fermetrar. Það var fyrirtækið HS-Verktak í Borgarnesi sem annaðist verkið. Myndina tók Jökull Helgason miðvikudaginn 5. október sl.    

Blústónleikar í Logalandi

Í kvöld, fimmtudaginn 6. október stendur Ungmennafélag Reykdæla fyrir tónleikum í félagsheimilinu Logalandi. Björn Thoroddsen, Halldór Bragason (vinir Dóra) og Jón Rafnsson leika blús eins og hann gerist bestur. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30.  

Tjaldbúar í fyrsta snjónum

Óvenjulegt er að sjá tjaldbúa á ferð um landið á þessum árstíma. Gestir á tjaldsvæðinu í Borgarnesi létu ekki snjó og hráslaga á sig fá og sváfu vært í tjaldi sínu þegar myndin var tekin nú í morgun. Hver segir svo að ferðamannatímabilið sé ekki alltaf að lengjast!  

Hressir krakkar á hlaupum

Miðvikudaginn 5. október er alþjóðlegi “Göngum í skólann” dagurinn haldinn hátíðlegur víða um heim. Um leið lýkur formlega verkefninu Göngum í skólann hér á landi. Grunnskólinn í Borgarnesi er þátttakandi í verkefninu en megin markmið þess er að hvetja nemendur til þess að ganga eða hjóla í og úr skóla. Um leið eykst færni þeirra í umferðinni og þau fræðast …

Hross í óskilum

Í óskilum er 2 – 3 vetra gamalt mertryppi brúnt að lit. Tryppið fannst í Borgarhreppi í sumar og það er ekki örmerkt. Eiganda eða hverjum sem kannast við tryppið er bent á að hafa samband við skristofu Borgarbyggðar í síma 433 7100 varðandi frekari upplýsingar.      

Stefnumótun í tómstundamálum

Tómstundanefnd Borgarbyggðar vinnur nú að stefnumótun í tómstundamálum. Í byrjun mánaðarins hélt nefndin íbúafund og setti í framhaldi af honum skjal með tillögum frá fundinum hér á heimasíðuna og óskaði jafnframt eftir fleiri hugmyndum. Tómstundanefnd mun hittast á fundi á mánudag í næstu viku og fara yfir allar tillögur sem borist hafa og leggja drög að textaskjali. Það skjal verður …

Endurreikningi afsláttar á fasteignaskatti lokið

Samkvæmt reglum Borgarbyggðar eiga tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar sem eiga lögheimili í Borgarbyggð rétt á afslætti af fasteignaskatti. Afslátturinn nær til íbúðarhúsnæðis sem viðkomandi býr sjálfur í. Afslátturinn ræðst af tekjum undanfarins árs. Hann er reiknaður til bráðabirgða við álagningu fasteignagjaldanna, út frá öllum skattskyldum tekjum einstaklings eða hjóna/sambúðarfólks, þ.m.t. eigna- og fjármagnstekjum samkvæmt síðasta skattframtali. Þegar afslátturinn var reiknaður …