Sveitaferð

Það er ýmislegt brallað í Öldunni þessi misserin. Fengum boð um heimsókn í sveitina til Hörpu okkar á Syðstu Fossum.

Mikill áhugi var á ferðinni og mörg sem skelltu sér vel búin í kuldanum að kíkja á dýrin. 

Fengum að sjá hesta, kindur og geitur. 

  

Herlegheitin voru síðan toppuð með heitu kakó!

Góður dagur í sveitinni og mikil ánægja með heimsóknina.