Framleiðsla Öldunnar

Aldan rekur verslun, saumastofu, kertagerð og smíðastofu. Það er því margt sem Aldan framleiðir og vinnur til sölu. Aldan tekur einnig að sér ýmis verkefni svo sem pökkun og merkingar á varning ásamt fleiri tilfallandi verkefnum í samstarfi við fyrirtæki og stofnanir.

Hægt er að hafa samband í síma 433-7440 eða með tölvupósti á netfangið aldan@borgarbyggd.is til þess að fá nánari upplýsingar eða panta vörur.

 

Kertagerð Öldunnar framleiðir kerti í öllum stærðum, gerðum og lit. Einnig er hægt að útbúa bæði inni- og útikerti.

Saumastofan í Öldunni er mjög öflug og hefur sjálfbærni og endurvinnslu að leiðarljósi. Framleiddir eru meðal annars fjölnota innkaupapokar, stuttir og langir smekkir, tuskur, litlar töskur, jólasokkar og fleira!

Margvíslegt handverk er einnig unnið í Öldunni og má þá til dæmis nefna sápur, vörur unnar úr við ásamt perluðum armböndum, eyrnalokkum og hálsfestum.