Aldan heimsækir Fjöliðjuna á Akranesi

Þann 12.mars sl. fór Aldan í heimsókn til vina okkar í Fjöliðjunni á Akranesi. Þar fengum við frábærar móttökur. Mikið gleði var við völd og var okkur boðið var upp á pítsuveislu og dans. Mikil gleði ríkti þar sem gamlir vinir hittust og öll svo glöð að hittast.  

Sveitaferð

Það er ýmislegt brallað í Öldunni þessi misserin. Fengum boð um heimsókn í sveitina til Hörpu okkar á Syðstu Fossum. Mikill áhugi var á ferðinni og mörg sem skelltu sér vel búin í kuldanum að kíkja á dýrin.  Fengum að sjá hesta, kindur og geitur.     Herlegheitin voru síðan toppuð með heitu kakó! Góður dagur í sveitinni og mikil ánægja …