Aldan – vinnustofa og hæfing er með aðsetur að Sólbakka 4 í Borgarnesi og fer starfsemi hennar þar fram. Í Öldunni fer fram starfs- og félagsþjálfun þar sem áhersla er lögð á að viðhalda og auka sjálfstæð vinnubrögð, starfsþrek og félagslega færni. Starfsemi Öldunnar hefur það að markmiði að auka hæfni til starfa og þátttöku í daglegu lífi og á almennum vinnumarkaði.
Aldan rekur verslun, saumastofu, kertagerð og smíðastofu. Aldan tekur einnig að sér verkefni svo sem pökkun og merkingar á varning í samstarfi við fyrirtæki og stofnanir.
Hægt er að hafa samband í síma 433-7440 eða með tölvupósti á netfangið aldan@borgarbyggd.is til þess að fá nánari upplýsingar eða panta vörur.
Aldan starfar samkvæmt lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, reglugerðum þeim tengdum og sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Upplýsingar um opnunartíma:
Aldan er opin alla virka daga frá 09:00 – 15:30. Gestir eru velkomnir á opnunartíma.
Karlarnir í skúrnum
Verkefnið Karlarnir í skúrnum er með aðstöðu í Öldunni á þriðjudögum og fimmtudögum á opnunartíma Öldunar.