Hugmyndafræði í starfi Öldunnar

Mikil áhersla er lögð á að starfsemi Öldunar sé byggð á faglegum grunni. Starfar Aldan því í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Aldan styðst við eftirfarandi hugmyndafræði eða nálgun í sínu starfi:

Þjónandi leiðsögn (e. Gentle teaching)

Þjónandi leiðsögn (e. Gentle teaching) var innleidd inn í starf Öldunar 2025.

Megin tilgangur þjónandi leiðsagnar er að rækta, kenna og viðhalda upplifun af tengslum, samveru og samfélagi fyrir þau sem hafa endurtekið upplifað einangrun, einmanaleika og skort á félagslegum tengslum. Þjónandi leiðsögn nýtir samkennd sem fyrsta val í að koma til móts við fólk með flóknar þarfir.

Þjónandi leiðsögn byggir á því að fólk eigi rétt á því að upplifa öryggi og hlýtt viðmót. Sérstök áhersla er lögð á myndun tengsla og samkennd í eigin garð og annarra. Rík áhersla er lögð á að fólk fái að vera við stjórnvölin í eigin lífi og tekið þátt á eigin forsendum eftir áhuga og getu.

Áhersla er lögð á jákvætt umhverfi  þar sem félagsleg tengsl, samvinna og jákvæðni er í hávegum höfð.

Frekari upplýsingar um þjónandi leiðsögn má finna á hér

Líkan um iðju mannsins (e. Model of human occupation)

Líkan um iðju mannsins vísar til þess hvernig áhugi, venjur og geta hefur áhrif á daglegt líf og iðju. Líkanið er nýtt til grundvallar í þeirri iðju sem fer fram í Öldunni. Þar er mikil áhersla lögð á áhuga hvers og eins þar sem eigin geta er í fyrirrúmi. Umhverfið er síðan nýtt til að styðja sem best við markmið hvers og eins. Nánari upplýsingar má finna hér.

Áfallamiðuð nálgun

Áfallamiðuð nálgun byggir á þeirri forsendu að þjónusta sé veitt af fólk með þekkingu og skilningi á áföllum og afleiðingum þeirra. Grunnstoðir áfallamiðaðrar nálgunar byggja á því að þekkja víðtæk áhrif áfalla og afleiðingum þeirra auk þess að skapa umhverfi sem stuðlar að vellíðan og öryggi.  

Áfallamiðuð nálgun styður við fólk með því að sýna skilning á vanda þess og upplifun í staðinn fyrir að setja skilyrði og hömlur. Horft er til styrkleika í stað annmarka og fólki er mætt á þeim stað sem þau eru.