Lýðheilsuvísar 2020 fyrir Vesturland

júlí 3, 2020
Featured image for “Lýðheilsuvísar 2020 fyrir Vesturland”

Embætti landlæknis hefur birt lýðheilsuvísa eftir heilbrigðisumdæmum á Íslandi fyrir árið 2020. Lýðheilsuvísum er ætlað að auðvelda sveitarfélögum og heilbrigðisþjónustu að greina stöðuna í sínu umdæmi, finna styrkleika og veikleika og skilja þarfir íbúanna þannig að þau geti unnið saman að því að bæta heilsu og líðan.

Heilsa og líðan geta verið breytileg eftir þáttum sem ekki er hægt að breyta, s.s. aldri, kyni og erfðafræðilegum þáttum en einnig þáttum sem hafa má áhrif á. Þar má nefna lifnaðarhætti á borð við áfengis- og tóbaksneyslu, mataræði og hreyfingu, samskipti við fjölskyldu og vini auk lífsskilyrða eins og menntun, atvinnu, húsnæði, heilbrigðis- og félagsþjónustu. Þessir þættir geta ýmist stuðlað að betri heilsu eða aukið líkur á sjúkdómum. Aðgerðir sem stuðla að bættu vinnuumhverfi og skólaumhverfi geta t.d. stuðlað að betri heilsu og líðan og dregið úr ójöfnuði. Svæðisbundnir lýðheilsuvísar geta nýst þeim samfélögum sem vilja leggja áherslu á heilsu og líðan þegna sinna með aðild að Heilsueflandi samfélagi og Heilsueflandi skóla.

Svæðisbundinn munur á heilsu, líðan og áhrifaþáttum þeirra er þekktur um allan heim. Almennt er lítið vitað um svæðisbundinn mun á heilsu og líðan á Íslandi en þó benda rannsóknir til þess að einhver mismunur sé til staðar. Til að draga sem mest úr svæðisbundnum mun á heilsu og líðan þarf að fylgjast með mælingum sem gefa þennan mun til kynna og miðla upplýsingunum til þeirra sem starfa á vettvangi. Stýrihópar Heilsueflandi samfélags og Heilsueflandi skóla geta þannig nýtt sér lýðheilsuvísa til að setja fram áætlun sem miðar að því að efla þá þætti sem þeir vilja leggja áherslu á.

Lýðheilsuvísa fyrir árið 2020 fyrir Vesturland má nálgast hér.


Share: