Uppskeruhátíð Sumarlesturs 3. september n.k.

nextjs

Fimmtudaginn 3. september kl. 16-17:30 bjóðum við öllum krökkum í heimsókn til okkar í Safnahúsið og fögnum frábærum árangri í sumarlestursátakinu í ár: 

„Gúndi geithafur og grasleitin mikla“

Um 80 börn skráðu sig til leiks og þar af skiluðu 54 börn 312 miðum í happamiðakassann sem þýðir að þau lásu í 312 klukkustundir.

Sérstakur gestur dagsins er Gunni Helga, hinn margverðlaunaði barnabókahöfundur. 
Jafnframt verða  heppnir þátttakendur dregnir út, farið verður í leiki og veitingar í lok dagskrá.  

Sjáumst sem flest!