Kaldármelar – Nýtt deiliskipulag

viktor1

Í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst skipulagslýsing að nýju deiliskipulagi í Borgarbyggð.

Kaldármelar

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 07.08.2026 að auglýsa lýsingu að nýju deiliskipulag fyrir ferðaþjónustu og frístundabyggð á Kaldármelum í Borgarbyggð.

Lýsingin tekur til 90 ha svæðis sem hefur verið skipt upp í þrjá jarðaparta, Kaldármela, Heiðarbýli og Hraunsmúlaland/ræktun. Markmið deiliskipulagstillögunnar er að skapa skýran ramma um uppbyggingu frístundabyggðar og ferðaþjónustu á svæðinu. Fyrirhuguð ferðaþjónusta snýr að uppbyggingu hótels, veitingastaðar, útleiguhúsa, tjaldsvæðis, starfsamannaaðstöðu og almennri þjónustu fyrir ferðafólk eins og til að mynda verslun. Á svæðinu er einnig flugvöllur. Aðkoma er af Snæfellsnesvegi (54), annars vegar um heimreið að Kaldármelum (5611) og hins vegar um hluta heimreiðar að Snorrastöðum (5610). Áætlunin samræmist Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is mál nr. 964/2026) frá 19.08 til og með 06.09.2026 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að koma með ábendingu við lýsinguna á kynningartíma. Ábendingum skal skilað í skipulagsgáttina. Ef óskað er nánari kynningu á lýsingunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að ábendingar teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 19. ágúst, 2026.