Ljóðasamkpenni

nextjs

Hefur þú sögu að segja, tilfinningu að miðla eða hugleiðingu um það sem gerir okkur að þeim sem við erum? Í ágúst og september efnir Símenntun á Vesturlandi til skapandi ljóðasamkeppni þar sem við viljum gefa ólíkum röddum og reynsluheimum vængi. Markmiðið er að skapa opinn og hvetjandi vettvang fyrir einlægar hugleiðingar um fjölmenningu, sjálfsmynd og inngildingu, auk þess að takast á við fordóma og fagna öllu því sem tengir okkur saman sem manneskjur. Þótt veitt verði verðlaun fyrir sigurljóðið, þá er samkeppninni fyrst og fremst ætlað að dýpka skilning okkar á hvers öðru, hvetja til samtals og varpa nýju ljósi á þann fjölbreytta reynsluheim sem við deilum.

Skilafrestur er 15. september 2026 á netfangið jovana@simenntun.is

Með þátttöku samþykkir höfundur að Símenntun megi birta, prenta og nota ljóðið í tengslum við verkefnið, svo sem á sýningu, í kynningarefni, á vefmiðlum eða í prentuðu safni. Höfundar verða ávallt nafngreindir við birtingu ljóðanna. Höfundarréttur að ljóðunum helst hjá höfundum.