Fjölmenning í Borgarbyggð


 

Farsæld barna

Farsæld barna

Samþætt þjónusta í þágu farsældar barna er skipulögð og samfelld þjónusta sem hefur það að markmiði að stuðla að farsæld barns. Þjónustan er veitt af þeim þjónustuveitendum sem eru best til þess fallnir að mæta þörfum barns og á þjónustan að vera án hindrana.
Lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi í janúar 2022.

Gagnlegar vefsíður

Tungumálatorg

Bildetema

MEMM Menntun- Móttaka- Menning

Skólasóknarkerfi Borgarbyggðar
Heilbrigðisþjónusta

Öll almenn læknaþjónusta fæst á Heilbrigðisstofnun Vesturlands sem staðsett er í Borgarnesi. Á heilsugæslunni er hægt að panta tíma hjá lækni eða á hjúkrunarmóttöku, eins er hægt að panta símatíma hjá lækni eða hjúkrunarfræðingi ef málið er þess eðlis að hægt sé að leysa í gegnum síma.
Ef mál eru aðkallandi er hægt að fá símtal samdægurs hjá vakthafandi hjúkrunarfræðingi á opnunartíma heilsugæslunnar, sem kemur málinu í viðeigandi farveg.

Læknir er á vakt allan sólarhringinn og sinnir bráðaþjónustu. Utan opnunartíma skal ávallt hringja í 1700 nema um neyðartilfelli sé að ræða, en þá skal ávallt hringja í 112.

Vakin er athygli á því að ekki er hægt að mæta á heilsugæsluna, það þarf ávallt að panta tíma.

  • Heimilisfang: Borgarbraut 65.
  • Afgreiðsla og tímapantanir virka daga: 432-1430
  • Opnunartími: kl. 08:00 – 16:00.
  • Vaktsími heilsugæslulæknis utan dagvinnutíma: 1700.