Brúartorg 6 – Tillaga að breytingu á deiliskipulagi

viktor1

Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Borgarbyggð.

Brúartorg 6

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 13.11.25 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Brúartorg 6 í Borgarbyggð.

Tillagan tekur til þess að komið er fyrir átta rafmagnshleðslustæðum á tveimur stöðum á lóðinni. Annars vegar eru fjögur rafmagnshleðslustæði við núverandi hús á norðurhluta lóðarinnar sem koma í stað hefðbundinna bílastæða. Hins vegar er gert ráð fyrir fjórum rafmagnshleðslustæðum sunnar á lóðinni þar sem áður var gert ráð fyrir umferðareyju og rútustæðum.
Við þetta minnkar umferðareyjan og rútustæðum fækkar úr þrem í tvö. Tillagan samræmist Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.
Skipulagstillagan er aðgengileg hér í skipulagsgátt.

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is mál nr. 1552/2025) frá 26.11.2025 til og með 12.01.2026 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á tillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagssviði.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 26. nóvember, 2025.